Íslandsmót öldunga 2022 var haldið laugardaginn 26. nóvember hjá Badmintonfélagi Hafnarfjarðar, í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.
36 keppendur voru á mótinu, frá 5 félögum; TBR, UMFA, BH, ÍA og Hamar. Keppt var í 9 flokkum og alls voru spilaðir 43 leikir.
Íslandsmeistarar öldunga 2022 og sigurverarar í B flokk urðu;
Í einliðaleik;
Einliðaleikur karla 35 - 44 A
Íslandsmeistari: Bjarki Stefánsson TBR
Sævar Ström TBR

Einliðaleikur karla 55 - 64 B
Egill Magnússon UMFA
Rúnar Sigríksson ÍA

Einliðaleikur kvenna 35 - 44 B
Sunna Karen Ingvarsdóttir UMFA
Sigrún Marteinsdóttir TBR

Í tvíliðaleik:
Tvíliðaleikur karla 35 - 44 A
Íslandsmeistarar: Jón Sigurðsson og Njörður Ludvigsson TBR
Ingólfur Ingólfsson og Sævar Ström TBR

Tvíliðaleikur karla 35 - 44 B
Eiríkur Sigurðsson og Marinó Njálsson TBR
Kári Þórðarson og Svavar Ásgeir Guðmundsson BH

Tvíliðaleikur karla 55 - 64
Íslandsmeistarar: Árni Haraldsson og Geir Svanbjörnsson TBR
Eggert Þorgrímsson TBR og Egill Þór Magnússon UMFA

Tvíleiðaleikur kvenna 35 - 44 B
Elín Wang og Sigrún Marteinsdóttir TBR
Inga María Ottósdóttir og Sunna Karen Ingvarsdóttir UMFA

Í tvenndarleik;
Tvenndarleikur 35 - 44 A
Íslandsmeistarar: Kjartan Ágúst Valsson og Anna Lilja Sigurðardóttir BH
Geir Svanbjörnsson og Sigrún Marteinsdóttir TBR

Tvenndarleikur 35 - 44 B
Kári Þórðarson og Erla Rós Heiðarsdóttir BH
Þórarinn Heiðar Harðarsson og Sunna Karen Ingvarsdóttir UMFA

Í hádeginu var boðið uppá súpu og brauð og málin rædd, m.a. um það hvernig hægt sé að vekja meiri athygli á mótinu og fá fleiri keppendur. Margar góðar ábendingar komu fram sem skoðaðar verða fyrir næsta mót.

Comments