OPIÐ BADMINTONMÓT var haldið í TBR-húsum um helgina.
Keppt var í öllum greinum í Úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild.
Mótið er hluti af mótaröð BSÍ og gefur stig á styrkleikalista sambandsins.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Úrvalsdeild:
Í einliðaleik karla sigraði Daníel Jóhannesson TBR og Eiður Ísak Broddason TBR varð í öðru sæti.
Í tvíliðaleik karla léku Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson TBR til úrslita gegn Guðmundi Adam Gígja og Róbert Inga Huldarssyni BH og þar sigruðu Davíð Bjarni og Kristófer.
Í tvenndarleik unnu Einar Óli Guðbjörnsson og Lilja Bu TBR gull og Kristófer Darri Finnsson og Hrafnhildur Magnúsdóttir TBR silfur.
Úrslit í 1. deild :
Í einliðaleik karla sigraði Davíð Örn Harðarson TBR og í öðru sæti varð Jón Víðir Heiðarsson BH.
Í einliðaleik kvenna vann Iðunn Jakobsdóttir TBR gull og Birna Sól Björnsdóttir KR silfur.
Í tvíliðaleik karla sigruðu Haukur Stefánsson og Kjartan Pálsson TBR og í öðru sæti urðu Bjarni Þór Sverrisson TBR og Einar Örn Þórsson UMFA.
Í tvíliðaleik kvenna sigruðu Hrafnhildur Magnúsdóttir og Iðunn Jakobsdóttir TBR og Arndís Sævarsdóttir UMFA og Sigrún Marteinsdóttir TBR lentu í öðru sæti.
Í tvenndarleik unnu Hrafn Örlygsson og Erla Rós Heiðarsdóttir BH gull og Stefán Steinar Guðlaugsson og Lena Rut Gígja BH silfur.
Úrslit í 2. deild:
Í einliðaleik karla Arnar Freyr Bjarnason UMFA gull og Rúnar Gauti Kristjánsson BH silfur.
Í einliðaleik kvenna sigraði Sigrún Marteinsdóttir TBR og í öðru sæti varð Anna Bryndís Andrésdóttir UMFA.
Í tvíliðaleik karla unnu Arnar Freyr Bjarnason og Halldór Magni Þórðarson UMFA gull og Helgi Valur Pálsson og Kristján Ásgeir Svavarsson BH silfur.
Í tvíliðaleik kvenna sigruðu Birna Sól Björnsdóttir og Hera Nguyen KR og í öðru sæti urðu Anna Bryndís Andrésdóttir og Eva Ström UMFA.
Í tvenndarleik unnu Andrés Ásgeir Andrésson og Anna Bryndís Andrésdóttir UMFA gull og Birkir Darri Nökkvason og Elín Helga Einarsdóttir BH silfur.
Með því að smella hér er hægt að skoða öll nánari úrslit frá mótinu og fleiri myndir eru á facebook síðu Aftureldingar
Comments