Íslandsmót öldunga í badminton 2024 verður haldið dagana 8. - 9. nóvember í samvinnu með Badmintonfélagi Hafnarfjarðar í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.
Áætlað er að keppni hefjist klukkan 17:00 föstudaginn 8. nóvember og 9:00 laugardaginn 9. nóvember.
Keppt verður í A og B getustigi í eftirfarandi flokkum karla og kvenna í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik:
· 35-44 ára (fædd 1989-1980)
· 45-54 ára (fædd 1979-1970)
· 55-64 ára (fædd 1969-1960)
· 65 ára og eldri (fædd 1959 og fyrr)
Öllum er frjálst að skrá sig í A getustig.
Í B getustig má ekki skrá sig ef:
· Leikmenn hafa orðið íslandsmeistarar í A flokki / 1. deild.
· Leikmenn hafa verið færðir upp í efstu deild þ.e. Meistaraflokk þegar það var og hét á einhverjum tímapunkti.
· Leikmenn hafa unnið sig upp í Úrvalsdeild samkvæmt styrkleikalista á einhverjum tímapunkti.
Stefnt er að því að vera með opinn trimmflokk fyrir 35 ára og eldri.
Það fer eftir skráningu hvort honum verður eitthvað skipt upp eftir aldri.
· Miðað er við að þeir sem almennt eru að keppa á mótum skrái sig frekar í B getustig en í trimmflokk.
Stefnt er að því að spila í riðlum þannig að allir fái amk 2 leiki í hverri grein en það fer eftir þátttöku hvernig það raðast.
Þátttökugjöld eru 5.000 krónur í einliðaleik og 4.000 krónur fyrir hvern keppanda í tvíliða- og tvenndarleik.
Þátttöku skal tilkynna til BSÍ á laufey@badminton.is fyrir kl.11:00 föstudaginn 1. nóvember 2024.
Athugið að skrá fullt nafn keppenda og kennitölur í meðfylgjandi skráningarskjal á Excel formi.
Yfirdómari Íslandsmóts öldunga er Laufey Sigurðardóttir.
Með von um góða þátttöku,
Laufey Sigurðardóttir
Mótastjóri Badmintonsambands Íslands
Comments