Keppt verður í A og B getustigi í eftirfarandi flokkum karla og kvenna í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik:
· 35-44 ára (fædd 1987-1978)
· 45-54 ára (fædd 1977-1968)
· 55-64 ára (fædd 1967-1958)
· 65 ára og eldri (fædd 1957 og fyrr)
Öllum er frjálst að skrá sig í A-getustig. Í B-getustigi mega aðeins þau keppa:
· Sem aldrei hafa orðið íslandsmeistarar í A-flokki/1.deild.
· Leikmaður sem var færður upp í efstu deild þ.e. meistaraflokk þegar það var
og hét á einhverjum tímapunkti.
· Leikmaður sem hefur unnið sig upp í Úrvalsdeild samkvæmt styrkleikalista á
einhverjum tímapunkti.
Stefnt er að því að spila í riðlum þannig að allir fái amk 2 leiki í hverri grein en það fer eftir þátttöku hvernig það raðast.
Þátttökugjöld eru 4.000 krónur í einliðaleik og 3.000 krónur fyrir hvern keppanda í tvíliða- og tvenndarleik.
Þátttöku skal tilkynna til BSÍ á laufey@badminton.is fyrir kl.11:00 föstudaginn 18. nóvember 2022. Athugið að skrá fullt nafn keppenda og kennitölur í meðfylgjandi skráningarskjal á Excel formi.
Yfirdómari Íslandsmóts öldunga er Laufey Sigurðardóttir.
Með von um góða þátttöku, Laufey Sigurðardóttir
Mótastjóri Badmintonsambands Íslands
Comentarios