top of page
Search
bsí

Verulegar tilslakanir á íþróttastarfi tóku gildi í dag




Heilbrigðisráðherra hefur nú gefið út nýja reglugerð sem tekur gildi 15. apríl og gildir til 5. maí nk. Með henni eru gerðar verulegar tilslakanir á íþróttastarfi á ný og verður aftur opnað fyrir starfsemi sundstaða og líkamsræktarstöðva, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Helstu breytingar í reglugerð heilbrigðisráðherra sem snerta íþróttastarfið eru eftirfarandi:


• Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna verða heimilar og hámarksfjöldi þátttakenda miðast við 50 manns í rými. Heimilt verður að hafa allt að 100 áhorfendur á íþróttaviðburðum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem lúta að skráningu, eins meters nándarmörkum á milli ótengdra aðila og grímuskyldu. Einungis er heimilt að hafa tvö sótthólf fyrir að hámarki 100 áhorfendur í hvoru hólfi, á íþróttaviðburðum.


• Sund- og baðstaðir mega opna fyrir 50% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Börn fædd 2015 eða síðar telja ekki með í hámarksfjölda.


• Líkamsræktarstöðvar mega opna að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, m.a. um sótthreinsun, skráningu í tíma, hólfun og 20 manna hámarksfjölda.


• Skíðasvæði mega opna fyrir 50% af hámarksfjölda gesta en þar verður að gæta að tveggja metra lágmarksfjarlægð og nota grímur sé ekki hægt að tryggja hana.


• Opinberir staðir mega taka á móti gestum, en hámarksfjöldi í rými er 20. Gæta þarf að tveggja metra lágmarksfjarlægð og nota grímur sé ekki hægt að tryggja hana.


57 views0 comments

Recent Posts

See All

Komentāri


bottom of page