Íþróttahúsið á Siglufirði 30.september.-01.október 2023.
Mótið hefst kl 09:00 báða dagana. Mótsstjórn áskilur sér rétt á að spila leiki á föstudagskvöldinu, ef þáttaka og uppröðun kallar á slíkt (verður þá gert í samráði við félögin).
Keppt í öllum greinum í flokkum U13-U19 (ef næg þátttaka næst) og einliða- og tvíliðaleik í U11.
Í einliðaleik gefst félögum kostur á að skrá keppendur í A eða B styrkleika og er það á ábyrgð þjálfara að gera það eins vel og kostur er. Út frá skráningu tekur mótsstjórn ákvörðun hvort keppt verður í báðum styrkleikaflokkum í hverjum flokki.
Keppt í riðlum í einliðaleik. Keppt í riðlum eða útsláttarfyrirkomulagi í tvíliðaog tvenndarleik (fer eftir þátttöku).
Mótsgjöld:
• Einliðaleikur kr 2.200 kr.
• Tvíliðaleikur kr 1.900 kr.
• Tvenndarleikur kr 1.900 kr.
Skráning lýkur kl 20:00 mánudaginn 25.september 2023.
Athuga að aðeins er tekið við skráningu á Excel formati BSÍ.
Skráning sendist á netfangið: siglotennis@gmail.com
Sjoppa verður á mótssvæðinu.
Upplýsingar um mótið veitir:
Óskar Þórðarson (848-6726 eða siglotennis@gmail.com)
Commentaires