Lokadegi Deildakeppni BSÍ 2024 - 2025 er lokið eftir mjög spennandi og skemmtilega keppni. Þátttaka í ár var með besta móti, alls 17 lið frá 6 félögum. Í Úrvalsdeild voru 3 lið, í .deild 6 lið og 8 lið í 2.deild en alls tóku 235 leikmenn þátt.
Úrslit urðu þau að í Úrvalsdeild varð TBR-A Íslandsmeistari og BH í 2. sæti.

TBR-A

BH
Í 1.deild urðu TBR Öllarar Íslandsmeistarar og BH - Bombur í 2.sæti.

TBR-Öllarar

BH - Bombur
Í 2.deild urðu BH - Skonsur Íslandsmeistarar og BH - Prima Donnas lentu í 2.sæti.

BH - Skonsur

BH - Prima Donnas
Hægt er að sjá úrslit allra leikja og viðureigna á Tournament software.

Comments