Badmintonsamband Ísland skrifaði í gær undir samning við landsliðsmennina Davíð Bjarna Björnsson og Kristófer Darra Finnsson. Markmið með þessum samningi er að styrkja þá vegna þátttöku í keppni á alþjóðlegum vettvangi.
Kristján Daníelsson formaður BSÍ, Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson.
Strákarnir hafa tekið miklum framförum síðastliðið ár.
Þeir eru í 150. sæti á heimslista Badminton World Federation (BWF) og í 36. sæti á Evrópulistanum.
Strákarnir ætla sér stóra hluti á árinu og stefna á að keppa á 14 alþjóðlegum mótum á árinu, en þeir hafa þegar lokið keppni á þremur alþjóðlegum mótum.
Davíð Bjarni og Kristófer hafa tryggt sér keppnisrétt í tvíliðaleik karla á Evrópumeistaramóti einstaklinga, sem haldið verður í Saarbrücken, Þýskalandi þann 8. - 14. apríl n.k.
Það verður spennandi að fylgjast með þeim á næstu vikum og mánuðum og óskum við þeim góðs gengis í undirbúningi sínum fyrir EM.
コメント