RSL Iceland International 2023 fer fram 26 - 29. janúar 2023 í TBR húsunum í Reykjavík.
Mótið er mjög stórt, með 291 keppanda frá 40 löndum.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Fimmtudaginn 26 jan. er "qualifying" (undankeppni) frá kl. 09 til c.a. 20.
Föstudaginn 27 jan. hefst "Main draw" (aðalkeppnin) kl. 09:00 og er til c.a. 21:00.
Laugardaginn 28 jan. heldur mótið svo áfram kl. 09 og kl. 16:00 hefjast áttaliða úrslit.
Sunnudaginn 29 jan. eru undanúrslit fyrir hádegi, frá 9 eða 10 (verður auglýst síðar) og úrslit hefjast kl. 16:00.
Allt besta badmintonfólk Íslands keppir á mótinu og hverjum við badmintonáhugafólk til að koma í TBR og horfa á frábært badminton.
Allar upplýsingar um mótið, leiki og úrslit má finna á tournament software
Mótið er hluti af Reykjavík International Games
コメント