Helgina 24 - 25 september nk. verður Meistaramót UMFA haldið í íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ. Keppt verður í úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild í öllum greinum. Keppt verður í riðlum í tvíliða- og tvenndarleik en útsláttur verður í einliðaleik.
Mótið getur stig a styrkleikalista og er hluti af fullorðinsmótaröð BSÍ.
Skráningu lýkur á miðnætti mánudaginn 19. september.
Mótanefnd UMFA áskilur sér rétt á að spila eina umferð í völdum greinum föstudagskvöldið 23 sept., ef þátttaka og uppröðun kallar á slíkt.
Stefnt er að því mótafyrirkomulagi að hver grein verði spiluð út á einum degi en raðað verður niður á daga eftir skráningu.
Mótsgjöld eru 3000 kr fyrir hverja grein.
Commentaires