Helgina 21. – 22. september nk. verður Meistaramót UMFA haldið í íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ.
Keppt verður í Úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild í öllum greinum.
Keppt verður í riðlum í tvíliða- og tvenndarleik en útsláttur verður í einliðaleik.
Mótið gefur stig á styrkleikalista og er hluti af fullorðinsmótaröð BSÍ.
Stefnt er að því mótafyrirkomulagi að hver grein verði spiluð út á einum degi en raðað verður niður á daga eftir skráningu.
Mótanefnd UMFA áskilur sér rétt á að spila 1 umferð í völdum greinum föstudagskvöldið 20. september, ef þátttaka og uppröðun kallar á slíkt.
Mótsgjöld eru kr. 4000 fyrir hverja grein.
Skráningu með staðalformi BSÍ skal senda á netfangið: badminton@afturelding. Skráningarfrestur er til og með mánudagsins 16 september. Stefnt er að því að birta uppröðun mótsins á miðvikudeginum 18 september.
Hlökkun til að sjá ykkur,
F.h. Badmintondeildar Aftureldingar
Inga María (620 4040)
Comments