top of page
Search
laufey2

DEILDARKEPPNI BSÍ - um næstu helgi :)


Deildakeppni BSÍ fer fram í TBR húsinu, Gnoðarvogi 1, dagana 11-13. mars n.k. Keppnin hefst á föstudeginum kl. 17.


Alls taka 16 lið, frá sjö félögum. þátt í keppninni en keppt er í þremur deildum; Úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild.


Í úrvalsdeild eru einungis 2 lið, sem spila hreinan úrslitaleik á laugardeginum 12. mars kl. 12:30. Leiknir verða átta leikir; 3 einliðaleikir karla, 1 einliðaleikur kvenna, 2 tvíliðaleikir karla, 1 tvíliðaleikur kvenna og 1 tvenndarleikur. Sigurliðið er Íslandsmeistari og félagið keppir fyrir höndi Íslands í Evrópukeppni félagsliða.


Í 1. deild eru skráð til keppni sex lið sem keppa í einum riðli, allir við alla.


Í 2. deild eru átta lið og spila þau í tveimur 4 liða riðlum. Eftir það keppa öll liðin 1 leik í viðbót, um sæti þ.e. 1-2, 3-4, 5-6 og 7-8.


Við hvetjum alla til að kíkja í TBR húsið um helgina, fylgjast með gríðarlega spennandi keppni og skemmtilegu badminton.


Hér er hægt að nálgast allar nánari upplýsingar varðandi tímasetningar og niðurröðun mótsins.


Laufey Sigurðardóttir er yfirdómari mótsins.



Mynd frá deildarkeppninni 2021


266 views0 comments

Commentaires


bottom of page