Til stendur að endurskoða form deildakeppninar, en til þess að geta haldið deildakeppni í ár eru núverandi mótareglum BSÍ notaðar og einfaldar reglur í meðfylgjandi mótsboði til viðbótar. Við vonumst eftir góðri þáttöku og minnum við á mótið verður haldið miðað við þær sóttvarnarreglur sem verð í gildi á mótstíma.
Í viðhengi má finna mótsboð með reglum
Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 18.febrúar. Ekki er tekið við skráningum eftir það.
Yfirdómari mótsins er Laufey Sigurðardóttir
Mótsstjóri er Kristján Daníelsson
Yfirdómari og mótsstjóri vilja vekja athygli á því að ekki er hægt að bæta við varamönnum inn í lið nema þeir séu á varamannalista félaganna. Verður engin undanþága gerð á þessu og því betra fyrir félögin að hafa varamannalistann lengri en styttri.
Með kveðju
Badmintonsamband Íslands
Comments