top of page
Search

Deildakeppni BSÍ dagana 6. - 8. mars

bsí

Mynd af sigurliðinu í Meistaradeild síðan í fyrra.


Deildakeppni BSÍ fer fram í húsum TBR, Gnoðarvogi 1, dagana 6. - 8. mars . Alls taka 17 lið frá fimm félögum þátt í keppninni en keppt er í þremur deildum, Meistaradeild, A-deild og B.deild.


Í meistaradeild eru 6 lið skráð til leiks og leika öll liðin við hvort annað. Sigurliðið er Íslandsmeistari og félagið keppir fyrir hönd Íslands í Evrópukeppni félagsliða sem fram fer í Bialystock, Póllandi dagana 23. - 27. júní.


Í A-deild eru skráð til keppni 5 lið sem keppa í einum riðli, allir við alla. Í B-deild eru skráð til keppni 6 lið sem keppa í einum riðli, allir við alla.


Hvetjum við alla til að kíkja í TBR húsið þessa daga og fylgjast með gríðalega spennandi keppni.


Með því að smella hér má finna niðurröðun mótsins, tímasetningar og leikmenn liða.

Laufey Sigurðardóttir er yfirdómari mótsins.

 
 
 

Commenti


©2017 BY BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS. PROUDLY CREATED WITH WIX.COM

  • facebook
bottom of page