Deildakeppni BSÍ 2023 - 2024 lýkur með tveimur leikjum í Úrvalsdeild, sunnudaginn 21. apríl og þriðjudaginn 23. apríl.
Badmintonfélag Hafnafjarðar heldur utan um leikina í samvinnu við BSÍ og leikið verður í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnafirði.
Aðeins eru tvö lið í Úrvalsdeild, BH og BH - ÍA og leiknir verða tvær viðureignir;
Sunnudaginn 21 apríl kl. 16:30
og þriðjudaginn 23 apríl kl. 17:30
Í Úrvalsdeild eru spilaðir 5 leikir í hverri viðureign, einn leikur í hverri grein.
Vonandi fáum við marga skemmtilega og spennandi leiki og hvetjum við alla til að koma á Strandgötuna og fylgjast með.
Comments