Deildakeppni BSÍ heldur áfram í þessari viku.
Miðvikudaginn 30. nóvember fer fram viðureign BH gegn TBR-UMFA Sleggjur, í 1. deild. Leikurinn er klukkan 17:30 í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnafirði.
Föstudaginn 2. desember heldur keppni áfram í 2. deild, A-riðli, þar sem TBR-Fiðrildi keppa gegn UMFA. Leikurinn er klukkan 17:00 í TBR húsunum, Gnoðavogi 1, Reykjavík.
Sunnudaginn 4. desember fara svo fram 3 leikir, þeir síðustu fyrir jól. Leikirnir eru allir kl. 16:00 í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnafirði.
Í Úrvalsdeild keppa BH-B gegn TBR, en þetta er fyrsta umferð í Úrvalsdeildinni.
Í 1. deild keppa BH-ÍA-TBS gegn TBR-Týnda kynslóðin
Í 2. deild, B-riðli, keppa BH Gamlir gegn ÍA.
Við hvetjum badmintonáhugafólk til að mæta í íþróttahúsin og horfa á skemmtilega leiki.
Comments