Bikarmót BH 2024 verður haldið helgina 10.-12.maí í íþróttahúsinu við Strandgötu.
Keppt verður í einliðaleik í riðlum í eftirfarandi flokkum:
• U13 – fædd 2011 og yngri
• U15 – fædd 2009 og 2010
• U17-U19 – fædd 2004-2007
Riðlarnir verða getuskiptir og verður notast við styrkleikalista BSÍ og ráðleggingar frá þjálfurum við röðun í riðla. Leitast verður við að hafa 4-5 í hverjum riðli en það getur þó verið breytilegt eftir fjölda skráðra þátttakenda. Mótsstjórn áskilur sér rétt til að sameina aldursflokka ef þess gerist þörf.
Sigurvegari í hverjum riðli fær bikar í verðlaun.
Það kemur í ljós fljótlega eftir að skráning liggur fyrir hvaða flokkur spilar hvaða dag og á hvaða tíma. Öruggt er að hver flokkur spilar aðeins einn dag eða hluta úr degi og því er ekki öll helgin undir.
Mótsgjaldið er 3.000 krónur á mann.
Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 3.maí.
Skráningar þurfa að vera í styrkleikaröð og berast á hefðbundna excelskráningarformi BSÍ á tölvupóstfangið bh@bhbadminton.is.
Stefnt er að því að gefa út niðurröðun með tímasetningum allra leikja á tournamentsoftware.com miðvikudaginn 8.maí.
Bestu kveðjur f.h. Badmintonfélags Hafnarfjarðar
Anna Lilja (s. 8686361)
Comments