Badmintondeild Þórs leitar eftir þjálfara í vetur. Um er að ræða tvær æfingar í viku sem og þjálfun á nokkrum mótum. Á síðasta tímabili voru æfingarnar á þriðjudögum og fimmtudögum frá ca. 18-19 en hægt er að skoða aðrar tímasetningar. Gott væri ef viðkomandi hefði reynslu af þjálfun og að starfa með börnum. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband á neðangreint netfang en ég vil jafnframt bæta því við að það tekur aðeins um 30 mínútur að keyra frá Rauðavatni til Þorlákshafnar.
Með von um skjót og góð svör, f.h. Badmintondeildar Þórs
Karen Ýr
留言