Brynjar Már Ellertsson og Karolina Prus léku nú í morgun gegn Jan Janostík og Katerinu Mikelovu frá Tékklandi í tvenndarleik á HM U19. Jan og Katerina unnu leikinn 21-10 og 21-11. Hafa því allir íslensku keppendurnir á HM U19 lokið keppni.
Öll nánari úrslit frá mótinu má finna með því að smella hér.