Mótaskrá fyrir keppnistímabilið 2019-2020 hefur verið gefin út og er hægt að nálgast hana með því að smella hér.
Alls eru níu fullorðinsmót á mótaröðinni sem gefa stig á Hleðslubikarsmótaröð Badmintonsambandsins og þá eru átta unglingamót sem gefa stig á styrkleikalista unglinga.
Vakin er athygli á því að Íslandsmót unglinga verður haldið helgina 20.-22.mars í húsum Aftureldingar Mosfellsbæ og Meistaramót Íslands verður haldið 1.-5.apríl í Íþróttahúsinu við Strandgötu, Hafnarfirði (BH).
Athugið að mótaskráin er birt með fyrirvara um villur.