Arna Karen Jóhannsdóttir
Afrekshópur Badmintonsambands Íslands auk eins keppenda úr U23 ára hóp sambandsins er nú á leið til Lettlands þar sem þau taka þátt í Yonex Latvia International 2019 mótinu.
Íslensku keppendurnir eru :
Úr Afrekshóp
Eiður Ísak Broddason
Daníel Jóhannesson
Davíð Bjarni Björnsson
Jónas Baldursson Kristófer Darri Finnsson
Margrét Jóhannsdóttir
Sigríður Árnadóttir
Úr U23 hóp
Arna Karen Jóhannsdóttir
Tinna Helgadóttir landsliðsþjálfari fer með hópnum.
Alþjóðlega lettneska mótið hefst fimmtudaginn 30.maí með leikjum í forkeppnum greinanna.
Smellið hér til að sjá niðurröðun og tímasetningar á Yonex Latvia International 2019.
Eftir mótið fara keppendurnir beint til Litháen og taka þar þátt í RSL Lithuanian International 2019.
Mótið þar hefst 6.júní með leikjum í forkeppnum greinanna.
Smellið hér til að sjá niðurröðun og tímasetningar á RSL Lithuanian International 2019.
Bæði mótin eru hluti af Future Series mótaröðinni sem gefa stig á heimslistann.