top of page
Search
bsí

Hvidovre áfram í sjöunda sæti


Heil umferð fór fram í dönsku deildinni um helgina. Drífa Harðardóttir spilar með Hvidovre 2 en félagið spilar í 3. deild en deildin er spiluð í fjórum átta liða riðlum. Fimmti leikur liðsins var gegn Gentofte 3 á laugardaginn. Hvidovre tapaði 3-10.

Drífa lék fyrsta tvíliðaleik kvenna og fyrsta tvenndarleik fyrir lið sitt. Tvíliðaleikinn lék hún Jennifer Andersen gegn Camilla Dew-Hattens og Kristina Suhr Olsen og þær Andersen unnu 21-16, 21-19. Tvenndarleikinn lék hún með Søren Torp gegn Jacob Chemnitz og Anne Gyde, sem unnu 21-18, 21-19.

Hvidovre 2 vann auk tvíliðaleiks Drífu annan tvenndarleik og annan einliðaleik karla. Smellið hér til að sjá fleiri úrslit viðeignanna.

Eftir þessa fimmtu umferð þriðju deildar er Hvidovre 2 áfram í sjöunda sæti riðilsins. Smellið hér til að sjá stöðuna í riðlinum.

Næsti leikur liðsins er laugardaginn 9. desember en þá leikur Hvidovre 2 gegn Slagelse.


18 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page